"Námsmatsstofnun er faglega sjálfstæð vísindaleg stofnun á sviði menntamála en gegnir auk þess veigamiklu, lögbundnu og hagnýtu, hlutverki í íslensku skólakerfi. Sérstaða stofnunarinnar felst einkum í sérþekkingu og sérhæfingu á sviði próffræði og námsmats, samanburðarannsóknum á menntakerfum."

Helsta hlutverk stofnunarinnar er að halda utan um framkvæmd samræmdra prófa í 4., 7. og 10. bekk.

Á vef stofnunarinnar (namsmat.is) má m.a. finna meðaltöl einkunna í samræmdum prófum skipt niður eftir landshlutum og skólum frá árinu 1998.