Vegagerðin safnar samfellt margvíslegum upplýsingum um umferð, ástand vega og veðurskilyrði.
- Umferðarkannanir og umferðarspár
- Umferð á þjóðvegum: Vegagerðin birtir árlega upplýsingar á netinu um umferð á þjóðvegum, þ.e. stofn-, tengi og landsvegum. Frá árinu 1995 eru þjóðvegir í kaupstöðum og kauptúnum taldir með stofn- og tengivegum. Upplýsingar um umferð á þeim voru þó í fyrsta sinn birtar fyrir árið 2000. Gögnin eru á PDF formi.
- Í skýrslunni Gagnagrunnar á Íslandi um náttúru, umhverfi, og orku er að auki að finna upplýsingar um eftirfarandi gagnasöfn á vegum Vegagerðarinnar:
- Veggagnabanki: Veggagnabanki er gagnagrunnur er heldur utan um vegakerfi það sem Vegagerðin hefur umsjón með. Grunnurinn heldur einnig utan um þá gagnahópa sem tengjast vegakerfinu, sem dæmi um þessa gagnahópa má taka vegrið, slitlag, umferðarmerki, slys, umferðartölur og mælitæki sem staðsett eru við vegi (umferðargreinar, veðurstöðvar o.fl.). (bls. 69)